Um okkur

Vatn og Heilsa hefur verið starfrækt á Selfossi síðan 1998 og er fyrsta og eina fyrirtækið á Suðurlandi sem býður almenningi upp á reglulega vatnsleikfimi. Það sem hófst sem lítið framtak með mikla ástríðu hefur í dag orðið að rótgrónu fyrirtæki þar sem hundruð einstaklinga hafa fundið gleði, vellíðan og styrk í vatninu.

Við trúum því að vatnið sé einstakt æfingasvæði - það styður við líkamann, dregur úr álagi og veitir jafnvægi og ró. Með því að nýta náttúrulega eiginleika þess getum við boðið upp á hreyfingu sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum, fólki í endurhæfingu og öllum þeim sem vilja hlúa að líkama og sál.

Okkar gildi:

Fagmennska - Vellíðan - Virðing - Umhyggja - Gleði

Hvað gerum við?

Við bjóðum upp á fjölbreytta vatnsleikfimi í grunnri og djúpri laug.

Við tökum vel á móti fólki á öllum aldri og færnistigum.

Við leggjum áherslu á styrk, jafnvægi, liðleika og slökun.

Við byggjum upp hlýlegt og traust samfélag þar sem vellíðan skiptir mestu máli.

Hverjar erum við?

Við erum hópur þjálfara með bakgrunn í ýmist íþrótta- og heilsufræði, sem deilum sameiginlegri ástríðu fyrir vellíðan og hreyfingu. Það sem sameinar okkur er hlýtt viðmót, einstaklingsmiðuð nálgun og metnaður til að skapa öruggt, hvetjandi og skemmtilegt umhverfi fyrir alla iðkendur.

Aníta Þorgerður Tryggvadóttir

Eigandi og þjálfari

Stella Rúnarsdóttir

Eigandi og þjálfari

Þjálfari

Auður María Óskarsdóttir

Þjálfari

Ásta Björk Óskarsdóttir

Þjálfari

Berglind Elíasdóttir

Þjálfari

Birta Þöll Tómasdóttir

Þjálfari

Eygló Hansdóttir

Þjálfari

Katrín Ósk Magnúsdóttir

Þjálfari

Viktorija Riskute

Þjálfari

Ólafur Ibsen

Þjálfari

Sigurlín Garðarsdóttir

Þjálfari

Steinunn Hulda Magnúsdóttir