• Morgunhópar

    Mánudaga - föstudaga kl: 06:40 - 07:20

    Sjá nánari upplýsingar um hópa í stundatöflu

    Léttir og fjölbreyttir tímar sem koma þér af stað með orku og vellíðan. Við notum fjölbreytt áhöld - núðlur, teygjur, bjöllur og fleira - og vinnum bæði í grunnri og djúpri laug. Hentar fólki á öllum aldri sem vill byrja daginn á jákvæðum nótum og hlúa að líkamanum á áhrifaríkan en mjúkann hátt.

  • Water HIIT

    Mánudaga og miðvikudaga kl. 19:05 - 19:55

    Árangursrík þjálfun fyrir þá sem vilja ögrun. Kraftmiklar vatnleikfimissæfingar sem styrkja allan líkamann – fyrir byrjendur og lengra komna.

  • Kvöldhópar

    Mánudagar og miðvikudagar.

    Sjá nánari tímasetningar og hópa í stundatöflu.

    Frískandi og kraftmiklir tímar eftir annasaman dag. Hvort sem þú vilt styrkja þig, losa um spennu eða bara hreyfa þig með gleði, þá er þetta tíminn fyrir þig. Við notum fjölbreytt áhöld og aðlögum æfingarnar að hópnum - þannig getur þú fundið þinn takt og náð endurnærandi jafnvægi fyrir kvöldið.

  • Gigtarhópar

    Mánudagar, þriðjudagar og fimmtudagar.

    Sjá nánari tímasetningar og hópa í stundatöflu

    Mjúk og styrkjandi hreyfing í vatni fyrir þá sem glíma við gigt, stoðkerfisvandamál eða aðra verki. Við leggjum áherslu á jafnvægi, liðleika, styrk og slökun. Þetta eru tímar þar sem þú hreyfir þig á eigin forsendum með stuðningi vatnsins - og ferð út með léttari líkama og hug.